Við erum litlir grallarar sem flýtum okkur aðeins of mikið í heimin. Við erum fæddir þann 16. júlí 2005 á Landspítalanum í Reykjavík rúmum 10 vikum fyrir tíman eða 29v og dvöldum í rúmar 7 vikur á vökudeild barnaspítala Hringsins. Við erum frá Akureyri og búum þar ásamt foreldrum okkar þeim Elvu og Hauk. Hákon Orri fæddist fyrstur kl.05:54 og var 1370. gr. (rétt rúmar 5 merkur) og 41.cm og Marinó Þorri kom fljótlega á eftir kl. 06:01 og var 1571. gr. (rétt rúmar 6 merkur) og 42. cm. Patrekur er svo nýjast fjölskyldumeðlimurinn og fæddist hann þann 27apríl 2011 hann kom í heiminn eftir örlítið lengri meðgöngu eða 39v...hann var 3885gr og 51 cm...aðeins stærri en tvíbbarnir Við erum sko litlir kraftaverkakallar og eru sko stolt foreldra okkar
EKKI GLEYMA AÐ KVITTA Í GESTABÓKINA